19.1.2007 | 14:58
Bandarískar teppalagnir í Sómalíu
Ég ákvað að byrja að blogga til að koma frá mér vangaveltum sem annars myndu daga uppi í höfðinu á mér og trufla þar heilastarfsemina. Í dag er ég semsagt búin að vera að velta fyrir mér Bandarískum teppalögnum. Það byrjaði með því að ég las dagbók Berlínarkonu, hún var stödd í Berlín í lok seinna stríðs, og fékk að kynnast misjöfnum sauðum úr Rauða hernum. En þar sem bókin er sannsöguleg sló það mig að hún var fegin því að það voru Rússar sem tóku borgina en ekki Bandaríkjamenn. Ástæðan var sú að þeir (Bandaríkin) hefðu byrjað á því að "teppaleggja", eða með öðrum orðum að sprengja borgina aftur á miðaldir. Og afhverju er ég að velta þessu fyrir mér núna? Jú, það hefur nefnilega heyrst að kaninn sé farinn að teppaleggja þorp í suður Sómalíu, það virðist duga að grunur leiki á að það sé staddur "hryðjuverkamaður" í ákveðnu þorpi til þess að réttlæta að þurrka það af landakortinu... ég veit ekki, er það bara ég eða finnst fólki þetta almennt skrítið?
Um bloggið
Hörður Örn Bragason
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.